Styrkleikalisti fyrir 1. maí hefur verið birtur á vefnum
Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2024 (kallaður eftir viku 18) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa undanúrslit og úrslit í deildakeppninni 6. og 13. apríl, Coca-Cola mót Víkings 20. apríl og héraðsmót HSK 25. apríl verið lesin inn í listann.
Við þessa uppfærslu komu nokkrar leikmenn inn á listann af óvirka listanum. Þeirra á meðal eru Halldóra Ólafs, BM og Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon, sem tylltu sér ofarlega á kvennalistann.
Veigar Elí Ölversson frá Selfossi var metinn inn á listann vegna árangurs í mánuðinum.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.