Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. maí hefur verið birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2025 (kallaður eftir viku 19) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:
Úrslitaleikir í deildakeppninni og umspilsleikur um sæti í 2. deild 5. apríl
3. unglingamót HK 6. apríl
Stóra Víkingsmótið 12. apríl
Opið mót á Kirkjubæjarklaustri 12. apríl
Opið mót í Suðursveit 13. apríl
Garpsmótið 26. apríl
Bikarkeppni BTÍ 27. apríl

Í þessum mánuði komu 29 nýir leikmenn inn á styrkleikalistann, aðallega vegna mótanna á Suðurlandi. Meðal nýrra leikmanna var Matthías Þór Sandholt, BH, sem kemur nýr inn á listann í 2. sæti karlalistans byggt á úrslitum í úrslitaleik í 1. deild karla.

Alexander Fransson Kleck, Carl Sahle og Vivian Huynh eru ekki með íslenska kennitölu og þeirra leikir telja því ekki á styrkleikalistanum.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Á forsíðunni má sjá Matthías Þór Sandholt, BH úr myndasafni frá úrslitaleiknum í 1. deild karla.

Aðrar fréttir