Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. mars birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2026 (kallaður eftir viku 10) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr Bikarkeppni BTÍ 14. febrúar, Coca-Cola mót Víkings 21. febrúar og leikir í deildakeppninni í febrúar verið lesin inn í listann. Leikir á Íslandsmóti unglinga 28. febrúar – 1. mars koma inn á styrkleikalistann 1. apríl.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Á forsíðunni má sjá Weroniku Grzegorczyk á Íslandsmóti unglinga 2026.

Aðrar fréttir