Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. mars hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2019 (kallaður eftir viku 9) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Raflandsdeildin og 2. deild karla 2.-3. febrúar, aldursflokkamót og Grand Prix mót BH 9.-10. febrúar og styrkleikamót Víkings 23. febrúar verið lesinn inn í styrkleikalistann.

Við uppfærslu á þessum lista fór Magnús Gauti Úlfarsson, BH, aftur á toppinn á karlalistanum. Þá fór Lóa Floriansdóttir Zink, KR, upp í 1. flokk í fyrsta skipti.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

ÁMU

Aðrar fréttir