Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. mars kominn á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. mars 2017 (nefndur eftir viku 9) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Listinn verður notaður til að draga í Íslandsmót unglinga.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. febrúar var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • Styrkleikamót ÍFR 4. febrúar
  • 9. og 10. umferð í 1. deild karla og kvenna 5. febrúar
  • Flokkakeppni unglinga 11. og 12. febrúar
  • Grand Prix mót BH, 18. febrúar
  • Aldursflokkamót BH, 19. febrúar
  • Grand Prix mót Víkings, 25. febrúar
  • Leikir í 2. deild, sem fram fóru í febrúar

Enn á eftir að ljúka vinnu við að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012 af listanum. Henni verður haldið áfram á næstunni. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.

Til að finna stig leikmanna, sem léku árið 2012 eða fyrr en ekki eru virkir lengur, þarf að fletta þeim upp í Excel skjalinu Styrkleikalisti 1. nóv.2015, sem er að finna í hægri dálkinum á síðunni, undir Nýtt á bordtennis.is.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir