Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2016 hefur verið birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2016 (nefndur eftir viku 43) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Enn á eftir að gera nokkrar minni háttar lagfæringar á örfáum leikmönnum neðarlega í 2. flokki karla og kvenna.
Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. október var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:
- 1. og 2. umferð í 1. deild karla og kvenna 15. október
- Aldursflokkamót Dímonar á fyrsta vetrardag, 22. október
- Adidas styrkleikamót Víkings, 29. október
- Fyrstu leikirnir í 2. deild, sem fram fóru í lok október
Styrkleikalisti fyrir 1. desember verður tilbúinn eftir nokkra daga.
Enn á eftir að ljúka vinnu við að fjarlægja konur, sem ekki hafa leikið síðan 2012 af listanum. Henni verður haldið áfram á næstunni. Upphaf árs 2013 var valið sem viðmið, þar sem það er viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ 2016.
Til að finna stig leikmanna, sem léku árið 2012 eða fyrr en ekki eru virkir lengur, þarf að fletta þeim upp í Excel skjalinu Styrkleikalisti 1. nóv.2015, sem er að finna í hægri dálkinum á síðunni, undir Nýtt á bordtennis.is.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).
ÁMU