Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2017 hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2017  (kallaður eftir viku 44) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur, hafa leikir Raflandsdeildinni 1. og 21. október, í 2. deild karla (A-riðli) 22. október og aldursflokkamót Dímonar 15. október, verið lesnir inn á styrkleikalistann.

Það gerðist helst markvert við þessa uppfærslu að Agnes Brynjarsdóttir úr Víkingi komst upp í 1. flokk í fyrsta sinn.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU

Aðrar fréttir