Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2026 birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2026 (kallaður eftir viku 45) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa Hjálmarsmót KR 3.-4. október, flokkakeppni unglinga 10. október, unglingamót HK 24. október, Pepsímót Víkings 31. október og úrslit úr leikjum í deildakeppninni 17.-18. október verið lesin inn í listann.
Það sem gerðist helst markvert við þessa uppfærslu er að Damian Moszyk, BR, komst upp í 1. flokk í fyrsta skipti.
Guðmundur Sigurðsson, Dímon, kom inn á virka listann af óvirka listanum. Sölvi Björn Björnsson, Víkingi, var metinn inn á listann vegna árangurs á mótum í október.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Á forsíðunni má sjá mynd úr myndasafni af Darian Adam Róbertssyni Kinghorn, sem vann sig upp í meistaraflokk í fyrsta skipti í september. Það gleymdist að geta þess þegar styrkleikalistinn 1. október var birtur.


