Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. nóvember 2025 (kallaður eftir viku 45) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr flokkakeppni unglinga 11. október, Hjálmarsmóti KR 18.-19. október, Héraðsmóti HSK 19. október og leikjum í deildakeppninni 25.-26. október verið lesin inn í listann.
Það sem helst hefur gerst markverð frá því að síðasti listi var birtur er að Viktor Daníel Pulgar, KR, er kominn upp í 1. flokk karla í fyrsta skipti. Marsibil Silja Jónsdóttir, Dímon er einnig komin upp í 1. flokk kvenna en hún er aðeins 10 ára.
Carl Sahle, í A-liði Víkings í 1. deild karla og Marcus Pestarino í C-liði KR í 2. deild karla fara ekki inn á listann þar sem þeir eru ekki með íslenska kennitölu og því telja leikir gegn þeim ekki inn á listann.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Á forsíðunni má sjá Marsibil efsta á verðlaunapalli í flokki táta á Héraðsmóti HSK 19. október.


