Styrkleikalisti fyrir 1. október 2018 hefur verið birtur
Styrkleikalisti fyrir 1. október 2018 (kallaður eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa fyrstu tvær umferðirnar í deildakeppni BTÍ, sem leiknar voru 29.-30. september, verið lesnar inn í styrkleikalistann.
Við uppfærslu á þessum lista gerðist það m.a. að Tómas Ingi Shelton í BH fór upp í meistaraflokk.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).
Í sumar voru svo þeir leikmenn í kvennaflokki, sem ekki hafa leikið síðan árið 2014 hreinsaðir út af styrkleikalistanum og sýnir kvennalistinn því aðeins þær konur sem hafa leikið á mótum síðan í upphafi árs 2015. Byrjað var að hreinsa út af karlalistanum á sama hátt, en sú vinna er skammt á vef komin. Haldið verður áfram með hana á næstu vikum.
Á forsíðumyndinni má sjá Ellert Kristján Georgsson leika á EM unglinga í sumar á mynd frá ljósmyndaranum Henk Homme.
ÁMU