Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. október birtur

Styrkleikalisti fyrir 1. október 2023 (kallaður eftir viku 40) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Við þessa uppfærslu hafa leikir í 1. og 2. deild karla þann 30. september verið lesnir inn í styrkleikalistann.
Þetta er fyrsti styrkleikalistinn fyrir keppnistímabilið 2023-2024.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir