Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikamót Dímonar á sumardaginn fyrsta

Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2018 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna.

Mótið hefst kl. 11.00 og er skráningargjald kr. 800,- á þátttakanda.

  • 2.flokkur karla Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20
  • 2.flokkur kvenna Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20

Vinningar fyrir efsta sætið í hvorum flokki eru eftirfarandi:

  • Gjafabréf frá Lárusi Á. Bragasyni í Miðhúsum uppá klst hestaferð um Njáluslóðir
  • Gjafabréf frá söluskálanum Björkin uppá 16´ pizzu og gos.
  • 10 miða sundkort í sundlaugina á Hvolsvelli

Síðasti skráningardagur er þriðjudaginn 17. apríl kl. 20:00 og skal skráningum skilað á netfangið [email protected].

Leikið verður með hvítum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum.
Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.

Yfirdómari verður Ólafur Elí Magnússon.
Mótstjórn: Ásta Laufey Sigurðardóttir, Guðmann Ó. Magnússon, Reynir Björgvinsson.

Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags

Bréf um mótið: Punktamót Dímonar 2018

 

ÁMU

Aðrar fréttir