Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikamót Dímonar á sumardaginn fyrsta – auglýsing

Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 21. apríl 2016 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna. Mótið hefst kl. 11.00 og er skráningargjald kr. 800,- á þátttakanda.

2. flokkur karla. Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20

2. flokkur kvenna. Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 20. apríl kl. 22:00 og skal skráningum skilað til [email protected]

Leikið verður með hvítum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum. Leiknar verða 3-5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.

 

Yfirdómari verður. Ólafur Elí Magnússon / Sigurjón Sváfnisson. Mótstjóri verður Ásta Laufey Sigurðardóttir.

Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.

 

ÁMU (skv. pósti frá Dímon)

 

 

Aðrar fréttir