Styrkleikamót ÍFR í 2. flokki verður haldið 4. febrúar
Styrkleikamót ÍFR í 2. flokki verður haldið í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún laugardaginn 4. febrúar. Keppni hefst kl. 10 í karlaflokki og kl. 14 í kvennaflokki.
Leikið verður í riðlakeppni þar sem 2 efstu komast áfram í útsláttarfyrirkomulag. Vinna þarf 3 lotur. Leikið verður með 3ja stjörnu kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin. Þátttökugjald er krónur 700.-
Yfirdómari: Helgi Þór Gunnarsson
Mótanefnd: Kristján Jónasson s: 862-9155
Jóhann Rúnar Kristjánsson s: 893-8947
Helgi Þór Gunnarssin s: 858-2050
Dregið verður í mótið miðvikudaginn 1.febrúar kl 20.00 og því verða skráningar að berst eigi síðar en kl. 16.00 miðvikudaginn 1. febrúar.
Tekið er á móti skráningum á [email protected] og hjá mótanefnd. Kennitala verður að fylgja skráningum svo þær teljist gildar.
Bréf um mótið: ifr mot 2017
ÁMU