Systkinin Pétur og Guðbjörg Vala sigruðu á Stórmóti HK
Alls tóku 47 keppendur þátt í Stórmóti HK og Stiga, sem fram fór í Íþróttahúsi Snælandsskóla 9. nóvember. Í karlaflokki voru keppendur 41 og 6 í kvennaflokki. Systkinin Pétur Gunnarsson og Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, bæði úr KR sem báru sigur úr býtum og fengu glæsilega Stiga Cybershape spaða frá pingpong.is að launum.
Verðlaunahafar í kvennaflokki:
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
2. Helena Árnadóttir, KR
3-4. Marta Stefánsdóttir, KR
3-4. Aldís Rún Larusdóttir, KR
Verðlaunahafar í karlaflokki:
1. Pétur Gunnarsson, KR
2. Ellert Kristján Georgsson, KR
3-4. Birgir Ívarsson, BH
3-4. Þorbergur Freyr Pálmarsson, BH
Úrslit úr öllum leikjum eru komin á vef Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/tournament/59D860C7-E37E-41A3-A475-F359ABBAF113
Myndir frá Finni Hrafni Jónssyni.