Tap í fyrstu leikjum karlalandsliðsins á NETU
Íslenska karlalandsliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum á Norður-Evrópumótinu (NETU) í Eistlandi.
Liðið mætti fyrst Litháen og tapaði 1-3, þar sem Matthías Þór Sandholt vann sinn leik 3-1. Magnús Gauti lék sem þriðji maður og tapaði í oddalotu. Ingi Darvis tapaði báðum sínum leikjum 1-3.
Síðan lék liðið við Eistland-1 og tapaði 0-3. Birgir og Ingi unnu lotu í sínum leik en Matthís tapaði 0-3.
Næsti leikur Íslands er við Grænland, og hefst hann kl. 14 að staðartíma.
Keppni í einliðaleik kvenna hefst kl. 16.30, en þá leika þær Guðbjörg Vala og Sól sína fyrstu leiki á mótinu.
Íslensku karlarnir leika fyrstu leiki sína í einliðaleik kl. 17.
Heimasíða mótsins: https://eltl.ee/voistlused/575
Forsíðumynd af Matthíasi úr myndasafni.


