Tap í fyrstu leikjunum í liðakeppni á Smáþjóðaleikunum
Borðtenniskeppni Smáþjóðaleikanna hófst með liðakeppni 28. maí. Íslensku konurnar riðu á vaðið og léku við Möltu en bæði liðin léku svo við Mónakó. Allir þessir leikir töpuðust 0-3, skv. upplýsingum á fésbókarsíðu BTÍ, þar sem fylgst er með leikunum.
Leikið er í riðlum, og eru sex lið í kvennakeppninni og sjö í karlakeppninni. Skv. úrslitasíðunni á vef leikanna eru þau sýnd í einum riðli fyrir hvort kyn, en í lýsingu á fyrirkomulagi keppni er sagt að skipt verði í tvo riðla.
Skv. vef ÍSÍ er sagt að sigri karlalið Íslands lið Montenegro kl. 11.45 að staðartíma þann 29. maí muni liðið komast í undanúrslit. Íslensku konurnar leika einnig við Montenegro en kl. 10 að staðartíma.
Úrslit úr einstökum leikjum
Konur
Ísland – Malta 0-3
Skv. vef leikanna lék Sól Kristínardóttir Mixa þennan leik en þar sem hún er ekki í liðinu hefur það væntanlega verið Agnes og/eða Stella sem lék þar sem nafn Sólar kemur fram.
- Sól Kristínardóttir Mixa – Viktoria Lucenkova 0-3 (4-11, 4-11, 5-11)
- Aldís Rún Lárusdóttir – Anthea Cutajar 0-3 (13-15, 5-11, 4-11)
- Aldís/Sól – Cutajar/Lucenkova 0-3 (5-11, 3-11, 4-11)
Ísland – Mónakó 0-3
Ekki eru upplýsingar um úrslit þessa leiks á vef leikjanna þegar þetta er ritað.
Karlar
Ísland – Mónakó 0-3
- Magnús Gauti Úlfarsson – Martin Tiso 1-3 (6-11, 7-11, 11-6, 6-11)
- Ingi Darvis Rodriguez – Anthony Geminiani 0-3 (2-11, 5-11, 8-11)
- Ingi/Magnús Jóhann Hjartarson – Geminiani/Tiso 0-3 (9-11, 4-11, 8-11)