Þjálfaranámskeið 21-23. september nk. Neven Cegnar
Þann 21.-23. september nk. verður haldið þjálfaranámskeið hjá BTÍ. Fyrirlesari verður þjálfarinn Neven Cegnar frá Króatíu.
Um Neven Cegnar:
Neven er fæddur í Zagreb Króatíu árið 1960. Var hann þjálfari félagsliða í Króatíu frá árinu 1982 til 1991 og vann á því tímabili til fjölda landstitla. Frá árinu 1992 til 2015 var hann þjálfari hjá Króatíska landsliðinu og yfirþjálfari kvennalandsliðsins. Var hann aðalþjálfari Tamara Boros sem hefur hæst náð evrópskra kvenna á heimslistanum. Frá árinu 2014 hefur hann haft yfirumsjón með þróunarstarfi ETTU (Development Manager) og var hann frá 2015 til 2017 yfirþjálfari í Werner Schlager Academy.
Árangur: 18 verðlaun í alþóðlegum mótum fullorðinna (EM, HM og Evrópu TOP-12) – 6 gull, 7 silfur, 5 brons. 14 verðlaun í unglingaflokkum (EM og HM unglinga og Evrópu TOP-12) – 4 gull, 6 silfur, 4 brons.
Einn fyrirlestur verður á fimmtudagskvöldið 21. september og tveir á föstudagskvöldinu 22. september. Verða fyrirlestrarnir haldnir í aðstöðu BH, Álfafelli á 2. hæðinni í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Hafnarfirði. Á laugardeginum verður æfing í HK með þjálfurum og yngri leikmönnum.
Ljóst að koma Cednar er hvalreki fyrir þjálfara á Íslandi. Þátttökugjald er kr. 1.500,- sem stendur straum að mat á föstudagskvöldinu. Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið [email protected]. Eru allir þjálfarar hvattir til að mæta og eflaust hafa margir leikmenn einnig mikið gagn á að sitja fyrirlestra Cegnar og eru þeir einnig velkomnir.
Að neðan er að finna drög að tímasetningum fyrirlestra Cegnar. Það athugast að hún getur breyst en það verður þá kynnt í tíma.
Seminar schedule, Neven Cegnar
Thursday 21.09.2017
17:45-19:45 1. lecture
Friday 22.09.2017
17:45-20:45 2. and 3.lecture
Saturday 23.09.2017
10:00-12:00 Practice with young players where Icelandic coaches will be present.