Þjálfaranámskeið ETTU/ITTF í september. Nýjar tímasetningar.
BTÍ minnir á þjálfaranámskeið ETTU/ITTF nú í byrjun september. Í samráði við þjálfarann Emanuel Christiansson hafa verið ákveðnar nýjar tímasetningar á þjálfaranámskeiðið eftir athugasemdir margra sem ekki gátu fengið sig lausa úr vinnu til að vera á námskeiðinu.
Nýjar tímasetningar á námskeiðinu eru eftirfarandi:
Mánudagurinn 3. september 2012: kl. 17.00-21.00 (4 klst.)
Þriðjudagurinn 4. september 2012: kl. 17.00-21.00 (4 klst.)
Miðvikudagurinn 5. september 2012 kl. 17:00-21.00 (4 klst.)
Fimmtudagurinn 6. september 2012 kl. 17.00-21.00 (4 klst.)
Föstudagurinn 7. september 2012 kl. 17.00-21.00 (4 klst.)
Laugardagurinn 8. september 2012 kl. 09.00-17.00 (6 klst.)
Sunnudagurinn 9. september 2012 kl. 09.00-13.00 (4 klst.)
Þátttökugjald er kr. 5.000,-. Skráningar sendist á netfangið: [email protected].