Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Þjálfaranámskeið hjá Sindre í vetur

Sindre Åteigen, landsliðsþjálfari, heldur þjálfaranámskeið á Íslandi veturinn 2026-2027. Námskeiðið tekur alls 24 klst. og verður haldið í tengslum við ferðir Sindre til Íslands í september, desember og apríl.

Lagt er upp með að námskeiðið verði e.k. 1. stigs þjálfaranám BTÍ og að hægt verði að byggja ofan á námið síðar. Sindre mun fara eftir norskri og sænskri fyrirmynd um efnistök og uppbyggingu.

Tímaáætlun:
fös. 4. september kl. 20-21:30
lau. 5. september kl. 12-16:30 (þar af kl. 14-16:30 að fylgjast með og aðstoða á æfingu unglingalandsliðsins)

lau. 19. desember u.þ.b. kl. 13-16:30
sun. 20. desember u.þ.b. kl. 13-16:30
Í desember er í boði að vera fjarnámi en það má líka mæta og vera í staðnámi

lau. 24. apríl u.þ.b. kl. 11-16:30
sun. 25. apríl u.þ.b. kl. 11-16:30

Verð fyrir námskeiðið: kr. 8.000 kr.

Skráningar á [email protected]. Síðasti skráningardagur er 28. ágúst.

BTÍ lofar að það sé a.m.k. laust eitt pláss fyrir hvert félag en vonast til að hægt verði að bjóða fleiri en einum þjálfara frá áhugasömum félögum.

Fyrir þá sem koma lengra að en 150 km (sem er viðmið ÍSÍ) verður greiddur ferðastyrkur, allt að kr. 15.000. Sýna skal kvittanir, svo sem fyrir bensíni, flugmiða eða gistingu á höfuðborgarsvæðinu áður en kostnaður verður endurgreiddur.

Aðrar fréttir