Þjálfaranámskeið Neven Cegnar í Reykjavík, 21-23. september nk.
Þjálfaranámskeið Króatans Neven Cegnar fer fram fimmtudaginn 21. til laugardagsins 23. september nk. Þátttaka er öllum opin en námskeiðið fer fram í aðstöðu BH í Hafnarfirði og æfing á laugardeginum fer fram í aðstöðu borðtennisdeildar HK í Fagralundi í Kópavogi. Þátttökugjald er kr. 1.500,- sem er ætlað að standa straum af mat í hléi á föstudeginum. Hægt er að greiða á staðnum í upphafi námskeiðs eða með millifærslu á reikning sambandsins sem er 0334-26-050073, kt. 581273-0109 og senda kvittun fyrir greiðslunni á [email protected].
Neven Cegnar er einn virtasti borðtennisþjálfarinn í Evrópu en hann var lengi vel landsliðsþjálfari kvenna í Króatíu auk þess sem hann var yfirþjálfari í Werner Schlager Academy í Austurríki.
Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:
Fimmtudaginn 21. september kl. 17:45-19:45:
Umfjöllun um hvað framtíðin beri í skauti sér Breytingar í leik með nýrri kúlu. Mismunandi nálgun á æfingum með byrjendum og lengra komnum. Hvað á þjálfari að leggja áherslu á á æfingum. Kúluæfingar – hvernig getur þjálfari aukið getustig afreksefna með kúluæfingum.
Föstudaginn 22. september kl. 17:30-19:50:
Mismunandi spilastílar. Mismunandi högg með forhönd og bakhönd. Mikilvægi uppgjafa og móttaka og fyrsta sókn. Æfingar sem þjálfa þetta. Flikk, mismunandi útgáfur. Dæmi um spilaæfingar. Tillögur varðandi æfingabúðir á Íslandi og æfingabúðir erlendis.
19:50-20:15 Matur
20:15-22:00 Heimildarmynd og umræður í framhaldi af henni.
Laugardagur 23. september 2017 kl. 10:00-12:00/13:00
Æfing með þjálfurum og 12 leikmönnum í aðstöðu borðtennisdeildar HK í Fagralundi í Kópavogi.