Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Þrír íslenskir leikmenn léku á opna lettneska mótinu 7.-9. ágúst

Þrír leikmenn úr BH, þeir Magnús Jóhann Hjartarson, Magnús Gauti Úlfarsson og Þorbergur Freyr Pálmarsson léku á opna lettneska mótinu, Latvian Open 2026, í Riga í Lettlandi 7.-9. ágúst sl.

Samkvæmt upphaflegri röðun íslensku leikmannanna var Magnús Gauti í 32. sæti, Magnús Jóhann í 35. sæti og Þorbergur í 48. sæti af 53 keppendum í einliðaleik karla.

Magnús Gauti lagði Kirils Demsovs frá Lettlandi 3-1 í 1. umferð, Axel Geijer frá Svíþjóð 3-2 í 2. umferð en tapaði 1-3 fyrir Lassi Lehtola frá Finnlandi í 3. umferð. Þá fluttist hann yfir í taphlið töflunnar, þar sem leikið var um sæti 3-53. Fyrst lagði hann Aleksandrs Maskalonoks frá Lettlandi 3-2 en tapaði svo 0-3 fyrir Eistanum Madis Moos. Magnús lék þá um sæti 13-16 og tapaði 2-3 fyrir Svíanum Obada Tabbakh. Loks átti hann að leika um 15. sæti en virðist hafa gefið þann leik. Magnús Gauti lauk því keppni í 16. sæti, mun ofar en upphafleg röðun gaf til kynna.

Magnús Jóhann tapaði 0-3 fyrir Aleksandrs Maskalonoks frá Lettlandi í 1. umferð. Hann fluttist því tapmegin í töfluna. Hann tapaði fyrir Arturs Rudnikovs frá Lettlandi 0-3 og keppti þá um sæti 33-48. Þar byrjaði Magnús á að sigra Dmitrijs Belajevs 3-1. Svo tapaði hann 0-3 fyrir Ilmar Vuhka frá Eistlandi. Því næst keppti hann um sæti 37-40 og vann Leonas Jasevicius frá Litháen 3-2. Loks lagði hann Janis Svikis frá Lettlandi 3-2 og varð því í 37. sæti.

Þorbergur tapaði 0-3 fyrir Davis Pavlovs frá Lettlandi í 1. umferð. Eins og Magnús Jóhann lék hann um sæti 3-53. Þar vann hann Robert Unt frá Eistlandi 3-0 en tapaði því næst 0-3 fyrir Dananum Malik Severinsen. Þá keppti Þorbergur um sæti 33-48 og tapaði 1-3 fyrir Lettanum Janis Svikis. Næst lék hann um sæti 41-48 og byrjaði á að sigra Kärlis Risters frá Lettlandi 3-0. Því næst tapaði hann 0-3 fyrir Andrus Hiiemäe frá Eistlandi. Síðasti leikurinn var um sæti 43, þar sem hann vann Gregor Kald frá Eistlandi 3-2 og hafnaði í 43. sæti.

Hér má sjá slóð á úrslitin úr mótinu: https://turniri.lgtf.lv/events/1382/net/3690

Forsíðumyndina af Þorbergi tók Magnús Jóhann Hjartarson.

Aðrar fréttir