Þrjú mót hjá KR 6.-7. febrúar
Borðtennisdeild KR heldur þrjú mót helgina 6.-7. febrúar í Íþróttahúsi Hagaskóla:
Laugardaginn 6. febrúar kl. 13.00 verður Aldursflokkamót KR, sem er mót í aldursflokkamótaröð BTÍ.
Sunnudaginn 7. febrúar kl. 10.00 hefst Hjálmarsmótið í tvíliðaleik með leik í karlaflokki, en kvennaflokkur hefst kl. 12.
Sunnudaginn 7. febrúar kl. 15.00 verður Aðalmótið, þar sem leikið verður með „öfugri“ hendi.
Leikmenn eru hvattir til að kynna sér gildandi sóttvarnarreglur, sbr. frétt á vef BTÍ.
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi bréfum.
Þjálfarar, sem vilja skila inn skráningum fyrir hóp leikmanna, eru beðnir um að fylla út meðfylgjandi Excel skjal, frekar en að senda skráningar í texta í tölvupósti.