Tillögur til umfjöllunar á ársþingi BTÍ þann 21. apríl nk
Fyrir þinginu liggja fyrir nokkrar tillögur um breytingar á reglum og reglugerðum BTÍ. Lúta tillögurnar m.a. að því hvernig taka eigi inn nýja leikmenn á styrkleikalista, um sameiginleg lið í flokkakeppni, hvort veita eigi Íslandsmeistaratitil í flokki þar sem aðeins einn/eitt par er skráð til leiks og um vægi aldursflokkamóta á styrkleikalista. Hægt er að sjá tillögurnar í pdf skjali sem er aðgengilegt hér.