Tímaáætlun fyrir deildakeppnina 10.-11. febrúar komin á vefinn
Tímaáætlun fyrir lokaumferðirnar í deildakeppninni eru komnar í dagatalið á vefnum.
- Í 1. deild karla verður leikið í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 10. febrúar.
- Í 2. deild karla verður leikið í húsnæði HK í Snælandsskóla laugardaginn 10. febrúar.
- Í 3. deild karla verður leikið í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 11. febrúar.
Þá ræðst hvaða lið verður deildarmeistari í 1. og 2. deild karla, og hvaða lið leika til úrslita í 3. deild.
Úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitlana í karladeildunum fer svo fram 6. og 13. apríl.
Fréttin uppfærð 5. febrúar kl. 17.04