Tímaáætlun fyrir Íslandsmótið í borðtennis
Nýr Íslandsmeistari verður krýndur í karlaflokki á Íslandsmótinu, sem verður haldið í TBR-húsinu helgina 12.-13. mars þar sem Íslandsmeistarinn síðustu tvö ár mætir ekki til leiks. Íslandsmeistarinn í kvennaflokki, Guðrún G Björnsdóttir, er skráð til leiks og freistar þess að verja titilinn.
Dráttinn í mótið má sjá á vef Tournament Software, www.tournamentsoftware.com
Dagskrá laugardaginn 12. mars:
- 11:00 Tvenndarkeppni – úrslitaleikur kl. 12:30
- 12:00 Tvíliðaleikur karla, leikið fram að undanúrslitum
- 13:00 Tvíliðaleikur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
- 14:00 Meistaraflokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
- 14:00 Meistaraflokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
- 15:00 1. flokkur kvenna, leikið fram að úrslitaleik
- 15:00 1. flokkur karla, leikið fram að úrslitaleik
- 16:00 2. flokkur kvenna, leikið fram að úrslitaleik
- 16:00 2. flokkur karla, leikið fram að úrslitaleik
Dagskrá sunnudaginn 13. mars:
- 11:30 Úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna
- 12:00 Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna
- 12:30 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna
- 13:15 Undanúrslit í meistaraflokki karla og kvenna
- 14:00 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna
- 14:30 Verðlaunaafhending
ÁMU (uppfært 12.3.)