Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

TÍMASETNING Á LEIKJUM Í 1. DEILD KARLA OG KVENNA 5. FEBRÚAR

Síðustu tvær umferðirnar í 1. deild karla og kvenna (9. og 10. umferð) verða leiknar í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 5. febrúar. Þá ræðst hvaða lið verður deildarmeistari í 1. deild karla og hvaða lið fellur í 2. deild. Þá verður ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni í 1. deild karla og kvenna.

Tímasetning:

9. umferð í báðum deildum verður leikin kl. 10.30.
10. umferð í 1. deild kvenna verður kl. 12.30.
10. umferð í 1. deild karla verður kl. 13.30.

Hægt verður að byrja leiki í 10. umferð fyrr ef bæði liðin eru sammála um það og ef eru laus borð í salnum.

Í skjalinu 1. deild 2016-2017, undir Nýtt á borðtennis.is hægra megin á síðunni, má sjá hvaða leikir fara fram þennan dag. Einnig má sjá leikjaáætlunina í dagatalinu hægra megin á síðunni.

Aðrar fréttir