Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Tólf þátttakendur á þjálfaranámskeiði Sindre

Alls eru 12 þátttakendur skráðir á þjálfaranámskeið hjá Sindre Åteigen landsliðsþjálfara, sem fer fram nokkrar helgar í vetur. Dagsetningarnar koma fram í dagatalinu á vefnum.

Fyrsta kennsluhelgin er 4.-5. september og var kennt í TBR-húsinu föstudaginn 4. september og í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 5. september. Níu þátttakendur mættu í TBR-húsið fyrri daginn en þrír voru í fjarnámi. Sjá mynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.

Aðrar fréttir