Tómas og Ólafía sigruðu á punktamóti Dímonar
Árlegt punktamót Dímonar á sumardaginn fyrsta
fór fram í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli 25. apríl. Keppendur voru um 50 talsins frá BH, Dímoni, HK, KR, Ungmennafélaginu Eyfellingi, Ungmennafélaginu Heklu og Víkingi. Leikið var í 2. flokki karla og kvenna.
Í 2. flokki karla sigraði Tómas Ingi Shelton úr KR. Í 2. flokki kvenna sigraði Íslandsmeistarinn Ólafía B. Ásbjörnsdóttir úr Dímon.
ÁMU
Mynd af verðlaunahöfum í karlaflokki er tekin af vefsíðu Dímonar