Töp hjá Íslendingunum á EM í Ljubljana
Íslensku keppendurnir á EM fullorðinna í Ljubljana í Slóveníu töpuðu leikjum sínum í einliðaleik í dag. Ekkert þeirra komst upp úr riðlinum og þau hafa því lokið keppni á mótinu.
Úrslit 12. október:
Einliðaleikur karla:
Matthías – Andras, Ungverjalandi 0-3
Ingi Darvis -Abiodun, Portúgal 0-3
Einliðaleikur kvenna:
Sól – Stoffregen, Danmörku 0-3
Keppni heldur áfram á mótinu til 18. október. Hér má sjá úrslit á mótinu á vef ETTU: https://www.ettu.tv/events/167/4/1/5/5
Hægt er að horfa beint á leiki á mótinu á vef ETTU og eru leikir á borðum 1-8 sýndir beint: https://www.youtube.com/@ettutvofficial
Forsíðumynd af Sól og Sindre frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


