Töp í tvíliðaleik hjá íslensku strákunum á EM unglinga
Íslensku strákarnir léku í tvíliðaleik á EM unglinga í Póllandi í dag en í tvíliðaleik er keppt með einföldum útslætti.
Þeir Eiríkur Logi og Þorbergur léku við par frá Kosovo í tvíliðaleik drengja 16-18 ára og töpuðu 1-3.
Alexander og Benedikt kepptu við búlgarskt par í tvíliðaleik sveina og töpuðu 0-3.
Íslensku pörin eru því úr leik í tvíliðaleik.
Íslensku leikmennirnir hafa því lokið keppni á mótinu.
Forsíðumynd úr myndasafni.