Um 40 keppendur á byrjendamóti KR
Borðtennisdeild KR hélt æfingamót fyrir byrjendur annað árið í röð og fór mótið fram í Íþróttahúsi Hagaskóla þann 13. nóvember. Mótið var opið fyrir þátttakendur úr tveimur flokkum, borðtennisskóla og uppleið. Markmiðið með mótinu var að kenna leikmönnum reglur í keppni og var keppt í riðlum á 12 borðum. Ekki voru veitt verðlaun fyrir árangur, heldur fengu allir þátttakendur borðtennisverðlaun frá pingpong.is.
Með fylgja nokkrar myndir af mótinu, sem Auður Tinna Aðalbjarnardóttir tók.
![](https://bordtennis.is/wp-content/uploads/2019/11/Byrjendamót-20191113_salur-4-640x480.jpg)
![](https://bordtennis.is/wp-content/uploads/2019/11/Byrjendamót-20191113_hópur-1-640x480.jpg)
![](https://bordtennis.is/wp-content/uploads/2019/11/Byrjendamót-20191113_hópur-2-640x480.jpg)
![](https://bordtennis.is/wp-content/uploads/2019/11/Byrjendamót-20191113_hópur-3-640x480.jpg)