Umsóknarfrestur til 10. desember í styrktarsjóð BTÍ
Umsóknarfrestur til að sækja um styrk í styrktarsjóð BTÍ fyrir árið 2023 rennur út næstkomandi sunnudag 10. desember.
Markmið styrkveitinga á vegum BTÍ er að styrkja afreksfólk í borðtennis og borðtennisíþróttina á Íslandi.
Við hvetjum áhugasama til þess að senda inn umsóknir á [email protected].
Nánar um styrktarsjóðinn og umsóknir má sjá í reglugerð.