Umspilsleikur um sæti í 2. deild á næsta keppnistímabili fer fram 24. júní
Laugardaginn 24. júní fer fram umspilsleikur um sæti í 2. deild næsta vetur. Lið Akurs sem lenti í 5. sæti 2. deildar og KR E sem lenti í 2. sæti 3. deildar leika til úrslita um sætið. Leikið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla og hefst leikurinn kl. 17.
Forsíðumynd af Magnúsi Holloway af fésbókarsíðu BTÍ.