Undanúrslit og úrslit í deildakeppnum
Undanúrslit og úrslit í deildakeppnum er framundan í apríl. Undanúrslit í karladeildum fara fram 6. apríl og úrslit í öllum deildum fara fram 13. apríl. Leikið verður í Strandgötu í Hafnarfirði.
BH-A varð Íslandsmeistari í 1. deild karla og Víkingur Íslandsmeistari í 1. deild kvenna árið 2023.
Breytt fyrirkomulag verður í úrslitakeppni karla og kvenna í öllum deildum. Markmiðið er að úrslitakeppni verði áhorfendavænni. Spilað verður á einu borði, vinna þarf þrjá leiki til að sigra. Notast verður við eftirfarandi fyrirkomulag en það var m.a. notað á European Games 2023.
- Tvíliðaleikur BC vs YZ
- Einliðaleikur A vs X
- Einliðaleikur C vs Z
- Einliðaleikur A vs Y
- Einliðaleikur B x X
Eftirfarandi leikir verða í undanúrslitum í karladeildum. Allir leikir hefjast klukkan 11 þann 6. apríl.
1. deild karla
- KR-A mætir HK-A
- BH-A mætir Víkingi-A
2. deild karla
- HK-B mætir KR-C
- Víkingur-B mætir BR-A
3. deild karla
- BH-C mætir BR-C
- KR-D mætir BM
Úrslit í öllum deildum fara svo fram 13. apríl. Tímasetningar verða birtar síðar.
- BH og Víkingur leika úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna
- KR-C og BR leika til úrslita í 2. deild kvenna
- Sigurvegarar í undanúrslitaleikjum í karladeildum leika til úrslita í 1., 2. og 3. deild karla
Myndir með fréttinni eru af Íslandsmeisturum BH og Víkings á síðasta ári