Unglingalandsliðið fyrir Norður-Evrópumótið tilkynnt
Unglingalandsliðið, sem tekur þátt í Norður-Evrópumóti unglinga í Eistlandi í seinni hluta júní, hefur verið tilkynnt. Sendir verða keppendur í þremur flokkum, tvö lið í kadettflokki sveina (fæddir 2001 og síðar), eitt lið í kadettflokki meyja (fæddar 2001 og síðar) og eitt lið í drengjaflokki (fæddir 1998-2000).
Einnig verður sent lið á Evrópumeistaramót unglinga, en ekki gáfu allir leikmenn kost á sér í báðar ferðirnar.
Eftirtaldir leikmenn skipa liðin á Norður-Evrópumótinu:
Kadett sveinar (U15)
1 Kári Ármannsson, KR
2 Ellert Kristján Georgsson. KR
3 Ísak Indriði Unnarsson, Víkingur
4 Ingi Brjánsson, KR
5 Karl A. Claesson, KR
6 Jóhannes Kári Yngvason. KR
Kadett meyjar (U15)
1 Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR
2 Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur
3 Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingur
Junior drengir (U18)
1 Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingur
2 Breki Þórðarson, KR
3 Magnús Gauti Úlfarsson, BH
4 Erlendur Guðmundsson, Víkingur
Á forsíðumyndinni má sjá Kára Ármannsson og Magnús Gauta Úlfarsson í keppni á EM unglinga 2015.
ÁMU