Unglingalandsliðið tekur þátt á Norður-Evrópumeistaramóti unglinga
Íslenska unglingalandsliðið í borðtennis tekur þátt í Norður-Evrópumeistaramóti unglinga, sem fer fram í Eistlandi 25.-27. júní nk.
Einar Geirsson, unglingalandsliðsþjálfari hefur valið hópinn sem tekur þátt í mótinu.
Á mynd Finns Hrafns Jónssonar hér fyrir neðan frá Íslandsmóti unglinga 2012 sjást þeir Jóhann, Magnús, Breki og Adrian, sem allir eru í kadett liðinu.
ÁMU