Unglingamót Borðtennisdeildar Víkings 26. febrúar
Unglingamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið sunnudaginn 26. Febrúar 2017. Keppt er í einföldum úrslætti með B keppni nema í yngstu aldursflokkum hnokka og táta þar sem spilað verður í riðlum. Þrjár lotur þarf að vinna til að vinna leik. Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ. Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti. Leikið verður með 3ja stjörnu plast kúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 800-
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Magnús Finnur Magnússon.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Sunnudagur 26. febrúar: kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka og táta f. 2006 og síðar
“ “ kl. 11:00 Einliðaleikur pilta og telpna f. 2004-2005
„ „ kl. 12:00 Einliðaleikur sveina og stúlknaf. 2002 – 2003
„ „ kl. 12:00 Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 1999-2001
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 23. febrúar klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]
Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 26. febrúar 2017
ÁMU