Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Unglingamót Borðtennisdeildar Víkings 26. febrúar

Unglingamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið sunnudaginn 26. Febrúar 2017. Keppt er í einföldum úrslætti með B keppni nema í yngstu aldursflokkum hnokka og táta þar sem spilað verður í riðlum.   Þrjár lotur þarf að vinna til að vinna leik.  Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ. Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti. Leikið verður með 3ja stjörnu plast kúlum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 800-

Yfirdómari: Árni Siemsen

Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Magnús Finnur Magnússon.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Sunnudagur 26. febrúar: kl. 11:00  Einliðaleikur hnokka og táta f. 2006 og síðar

  “                “                    kl. 11:00 Einliðaleikur pilta og telpna f. 2004-2005

„                 „                       kl. 12:00  Einliðaleikur sveina og stúlknaf. 2002 – 2003

„                 „                       kl. 12:00 Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 1999-2001

 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 23. febrúar klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]

Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 26. febrúar 2017

 

ÁMU

Aðrar fréttir