Unglingamót KR 9. janúar 2016
Borðtennisdeild KR heldur 3. mótið í unglingamótaröð BTÍ laugardaginn 9. janúar í Íþróttahúsi Hagaskóla.
Aldursflokkar
- 11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2005 og síðar
- 14:30 Einliðaleikur táta f. 2005 og síðar
- 11:00 Einliðaleikur pilta f. 2003-2004
- 14:30 Einliðaleikur telpna f. 2003-2004
- 12:30 Einliðaleikur sveina f. 2001-2002
- 14:30 Einliðaleikur meyja f. 2001-2002
- 14:00 Einliðaleikur drengja f. 1998-2000
- 14:30 Einliðaleikur stúlkna f. 1998-2000
Hver unglingur má aðeins leika í einum aldursflokki.
Fyrirkomulag keppni
Keppt er í riðlum og spilað er með útslætti upp úr riðlinum. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Leikið verður á Stiga expert borðum með hvítum Tibhar 3ja stjörnu kúlum.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld: 800 krónur á mann. Ef þátttökugjald er greitt í síðasta lagi 7.1. kl. 18 er veittur afsláttur og er þátttökugjaldið þá 600 krónur. Gjaldið greiðist inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og sett inn kennitala leikmanns, sem greitt er fyrir.
Skráning fer fram með tölvupósti til mótsstjórnar fyrir kl. 18 fimmtudaginn 7. janúar. Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!
Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudagskvöldið 7. janúar klukkan 20:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða.
Mótstjórn:
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Guðrún G Björnsdóttir, gsm. 695 2636, [email protected]
Hannes Guðrúnarson, gsm. 874 6964, [email protected]
Yfirdómari: Hannes Guðrúnarson.
Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR
Ásta M. Urbancic
Uppfært bréf um mótið: Unglingamót KR 9.1.2016 uppfært
ÁMU (uppfært 27.12. og 29.12.)