Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Unglingamót Víkings í borðtennis

Unglingamót Víkings í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 10. mars 2024

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

Sunnudagur 10. mars: kl. 10:00 piltar og stúlkur 9. ára og yngri

  • kl. 10:00 piltar og stúlkur 10-12 ára
  • kl. 11:30 Drengir og stúlkur 13-15 ára
  • kl. 11:30 Drengir og stúlkur 16-18 ára

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Aðeins má leika í einum aldursflokki.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500-

Yfirdómari: Árni Siemsen

Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen og Ísak Unnarsson

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 7. mars kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]. og sms skeyti.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 7. mars kl. 17:00.

Aðrar fréttir