Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Unglingamóti Víkings frestað frá 14. til 20. febrúar

Unglingamóti Víkings, sem átti að vera 14. febrúar skv. mótaskrá, hefur verið frestað til 20. febrúar.

Auglýsing um mótið:

Unglingamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið laugardaginn 20. febrúar 2016 sem er fjórða mótið í unglingamótaröð Borðtennissambands Íslands.  Keppt er í riðum og síðan leikið með útslætti upp úr riðlum.  Þrjár lotur þarf að vinna til að vinna leik.  Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti.

Leikið verður með 3ja stjörnu plast kúlum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 800-

Yfirdómari:  Árni Siemsen

Mótstjórn skipa:  Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.

 

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Laugardagur 20. febrúar:   kl. 11:00  Einliðaleikur hnokka og táta f. 2005 og síðar

  “                 “                        kl. 11:00  Einliðaleikur pilta og telpna f. 2003-2004

„                 „                        kl. 12:00  Einliðaleikur sveina og stúlkna f. 2001 – 2002

„                 „                        kl. 12:00 Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 1998-2000

 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 18 febrúar klukkan 17:00, en dregið verður í mótið  í TBR-Íþróttahúsinu 18. febrúar klukkan 18:00.

Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected].

Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 20. febrúar 2016

 

ÁMU

Aðrar fréttir