Uppfærðar sóttvarnarreglur BTÍ vegna COVID-19
Stjórn BTÍ sendir frá sér uppfærðar sóttvarnarreglur vegna COVID-19. Reglurnar gilda frá 20. október til 10. nóvember.
Sérstaklega er vakin athygli á eftirfarandi:
- Aðeins einliðaleikur er heimill, ekki tvíliðaleikur eða tvenndarleikur.
- Allir þátttakendur þurfa að spritta sig fyrir og eftir æfingu og keppni.
- Kúlur skulu sótthreinsaðar fyrir og eftir æfingu og keppni.
- Leitast skal við að skipta sem minnst um æfingafélaga. Þegar það er gert þurfa þeir að sótthreinsa hendur sínar og kúlur.
Sjá nánar: