Uppfærsla á styrkleikalista 1. febrúar frestast
Uppfærsla á styrkleikalista 1. febrúar frestast um óákveðinn tíma, þar sem gögn úr styrkleikamóti Víkings þann 19. janúar hafa ekki verið slegin inn í Tournament Software.
Styrkleikalistinn 1. febrúar er sá listi sem verður notaður við röðun í Íslandsmótið, sem fram fer 2.-3. mars.
Forsíðumynd af Óskari Agnarssyni, leikmanni HK. Mynd af fésbókarsíðu BTÍ.
ÁMU