Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Uppfært: Bikarkeppni félaga 3. desember 2022

Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 3. desember 2022 kl. 12:00. Athugið breytta dagsetningu frá fyrri auglýsingu.

Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.

Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:
Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi. Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði. Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi. Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.

Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:

  1. Einliðaleikur karla A – X
  2. Einliðaleikur karla B-Y
  3. Einliðaleikur kvenna
  4. Tvíliðaleikur karla
  5. Tvenndarkeppni
  6. Einliðaleikur karla A-Y
  7. Einliðaleikur karla B-X

Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Tapi lið leiknum er það úr leik. Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.

Þátttökugjaldið í mótið er kr. 5.000 á lið. Yfirdómari: Árni Siemsen.

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 1. desember kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar:

Pétur s-8940040/[email protected]/sms skeyti Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 1. desember kl. 16:00.

Með Borðtenniskveðju
F.h. Borðtennisdeildar Víkings
Pétur Ó. Stephensen

Auglýsing

Aðrar fréttir