Úrslit 1. deild karla. Síðasti leikurinn í kvöld KR A Víkingur A
Miðvikudaginn 7. mars mættust lið Víkings B og Víkings C og Víkings D og HK A í fyrstu deild karla. Leikur Víkings D og HK A var háspennuleikur og réðust úrslitin í síðasta leik. Gaf liðið ekki tommu eftir og fór út með látum. Akur tekur sæti HK A í 1. deild karla á komandi keppnistímabili.
Í kvöld fer svo fram lokaleikur deildarinnar í KR húsinu, leikur KR A og Víkings A. Hefst hann kl. 19.00. Víkingur A hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir úrslitakeppnina. Leikurinn kann e.t.v. að gefa innsýn í framhaldið en von er á spennandi úrslitakeppni.