Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit á Reykjavíkurleikunum í borðtennis 2022

Reykjavíkurleikarnir í borðtennis 2022 – Reykjavík International Games.

Glæsilegu og vel heppnuðu borðtennismóti lokið.

Sigurvegarar mótsins Víkingarnir Nevena Tasic og Ingi Darvis Rodriguez 

Sigurvegarar RIG 2022

Borðtennismóti Reykjavíkurleikana 2022 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 29. janúar 2022 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.  Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem 25. leikmenn léku í karlaflokki og 6. leikmenn í kvennaflokki.  Góðir gestur Peter Svenningsen frá Danmörku lék á mótinu.

Í Karlaflokki léku í undanúrslitum  Ingi Darvis Víkingi gegn Birgir Ívarssyni BH, leikar fóru þannig að Ingi Darvis sigraði örugglega 4 – 0 (12-10, 11-2, 11-4 og 11-4).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Íslandsmeistaarinn  Magnús Gauti Úlfarsson BH gegn Peter Svenningsen Danmörku, leikar fóru þannig að Peter sigraði 4 – 1 (8-11, 11-8, 12-10, 11-9 og 12-10).

Úrslitaleikinn léku því Ingi Darvis Víkingi gegn Peter Svenningsen Danmörku.  Um hörkuleik og góðan úrslitaleik var að ræða þar sem Ingi Darvis sigraði 4 – 2 (4-11, 12-10, 11-9, 12-10, 8-11og 11-8).

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Íslandsmeistarinn Nevena Tasic Víkingi gegn Ársól Arnardóttur KR, þar sem Nevena sigraði örugglega 4 – 0 (11-3, 11-6, 11-9 og 11-4).

Í hinum undanúrslitaleiknum léku Aldís Rún Lárusdóttir KR gegn Stellu Karen Kristjánsdóttir Víkingi.  Aldís  sigraði örruglega 4 – 0 (11-6, 11-4, 11-6, og 11-7).

Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur.  Leikar fóru þannig að Nevena sigraði 4 – 0 (11-2, 11-5, 11-5 og 11-2).

Úrslitin í mótinu voru þannig:
Einliðaleikur karla:   

1.  Ingi Darvis Rodriguez Víkingur   

2.  Peter Svenningsen Danmörk

3-4.  Magnús Gauti Úlfarsson BH

3-4.  Birgir Ívarsson BH

RIG verðlaunahafar í karlaflokki

Einliðaleikur kvenna:   

1.  Nevena Tasic Víkingur   

2.  Aldís Rún Lárusdóttir KR 

3-4.  Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingur 

3-4.  Ársól Arnardóttir KR

RIG verðlaunahafar í kvennaflokki

Aðrar fréttir