Úrslit á unglingamóti með unglingum frá Færeyjum
Æfingabúðum, sem haldnar voru með íslenskum og færeyskum unglingum helgina 5.-7. október lauk með opnu unglingamóti. Leikið var í einliðaleik og tvíliðaleik og sigruðu færeysku gestirnir í tvíliðaleik drengja og einliðaleik stúlkna en íslensku leikmennirnir í tvíliðaleik stúlkna, einliðaleik kadett drengja, kadett stúlkna og minikadett stúlkna. Agnes Brynjarsdóttir fór heim með þrjú gull, því hún sigraði í bæði kadett og minikadett flokki, sem og tvíliðaleik með Berglindi Magnúsdóttur.
Úrslit voru sem hér segir:
Opinn flokkur tvíliðaleikur drengir (fæddir 2001 og síðar)
- Høgni Heinason/Rói Seyer Hjaltason, Tór
- Eiríkur Logi Gunnarsson/Steinar Andrason, KR
3.-4. Aron Frankieson Knudsen/Tórur Eið Eliasen, Tór
3.-4. Ári Fríðason Jensen/Heri Lava Láadal, Tór
Opinn flokkur tvíliðaleikur stúlkur (fæddar 2001 og síðar)
- Agnes Brynjarsdóttir/Berglind Anna Magnúsdóttir, Víkingur/KR
- Hildur Marín Gísdóttir/Hildur Halla Þorvaldsdóttir, Umf. Samherjar/KR
3.-4. Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir/Þuríður Þöll Bjarnadóttir, KR
3.-4. Lóa Floriansdóttir Zink/ Sólja Hilduberg Djurhuus, KR/Tór
Einliðaleikur minicadet stelpur (fæddar 2006 og síðar)
- Agnes Brynjarsdóttir, Víkingur
- Marin Elisabet Poulsen, TBF
- Berglind Anna Magnúsdóttir, KR
Einliðaleikur cadet stelpur (fæddar 2004-2005)
- Agnes Brynjarsdóttir, Víkingur
- Harriet Cardew, BH
3.-4. Hildur Marín Gísdóttir, Umf. Samherjum
3.-4. Marin Elisabet Poulsen, TBF
Einliðaleikur junior stelpur (fæddar 2001-2003)
- Sólja Hilduberg Djurhuus, Tór
- Lóa Floriansdóttir Zink, KR
3.-4. Britt Michelsen, TBF
3.-4. Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR
Einliðaleikur cadet drengir (fæddir 2004-2005)
- Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
- Tórur Eið Eliasen, Tór
3.-4. Heiðmar Sigmarsson, Umf. Samherjum
3.-4. Matiss Meckl, Akri
Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur og Ingimar Ingimarssyni.
ÁMU