Úrslit frá Arctic mótinu í Færeyjum
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson og Kári Mímisson unnu eina gull Íslands þegar þeir sigruðu í tvíliðaleik á Arctic mótinu í Færeyjum.
Heimamenn í Færeyjum unnu þrjú gull og nutu þar liðsinnis Henriettu Nielsen, sem sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik með Duritu Jensen og var í sigurliði Færeyja í liðakeppni kvenna. Þá hlaut hún brons í tvenndarkeppni með Pætur Albinus.
Grænlendingar unnu líka þrjú gull og í öllum þeirra átti Ivik Nielsen hlut. Hann sigraði í einliðaleik, í tvenndarleik með Melissu Larsen og var í sigurliði Grænlands í liðakeppni karla. Þá hlaut Ivik brons í tvíliðaleik karla þar sem hann lék með Aqqalu bróður sínum.
Myndir af verðlaunaafhendingum þar sem Íslendingar komu við sögu, teknar af Facebook síðu BTÍ.
Skjal með lista yfir verðlaunahafa:
ÁMU