Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit frá Vestfjarðamótinu 30. maí og útbreiðsla á Vestfjörðum

Laugardaginn 30. maí 2026 fór fram fyrsta Vestfjarðamótið í borðtennis og var leikið á Patreksfirði.

20 keppendur frá tveimur íþróttafélögum öttu kappi, 16 frá íþróttafélaginu HHF, Patreksfirði og 4 frá íþróttafélaginu Höfrungi, Þingeyri.

Keppt var í fjórum keppnisflokkum og vann HHF sigur í þremur þeirra og Höfungur í einum. Þetta munu vera fyrstu sigrar félaganna á formlegu móti á vegum BTÍ.

Úrslit frá mótinu:

Opinn flokkur kvenna
1. Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir, Höfrungur
2. Birna Friðbjört Stephensen Hannesdóttir, HHF
3. Rán Bjarnadóttir, Höfrungur

Opinn flokkur og U18 karla
1. Pawel Dobosz, HHF
2. Frosti Þór Ásgeirsson, HHF
3. Ásgeir Sveinsson, HHF

U14 karla
1. Sæmundur Óli Davíðsson, HHF
2. Alexander Nói Ásgeirsson, HHF
3.-4. Óskar Elí Ísaksson, HHF
3.-4. Sigurður Sean Gunnarsson, HHF

U11 blönduð kyn
1. Elías Ýmir Davíðsson, HHF
2. Sigurður Carlos Liljuson Da Silva, HHF
3.-4. Arnar Atli Haraldsson, HHF
3.-4. Haukur Leó Ásgeirsson, HHF

Úrslit úr öllum leikjum á mótinu má sjá hér: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/795C7AAD-F8BA-4C52-8C3D-D0811F537996

Kvöldið áður fór fram borðtennisæfing og kvöldvaka sem Pawel Dobosz, borðtennisþjálfari HHF og Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir, annar tveggja borðtennisþjálfara Höfrungs, stýrðu í samvinnu við Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur, formann BTÍ. Boðið var upp á pizzu og leiki.

Vikulegar æfingar hafa farið fram fyrir tvo aldurshópa hjá HHF frá því í haust, líkt og áður hefur verið fjallað um á heimasíðunni. Æfingar á Þingeyri hófust hins vegar ekki fyrr en í síðustu viku með heimsókn BTÍ en þar er horft til þess að byrja með æfingar tvisvar í viku í haust eftir borðapöntun í sumar. HHF-félagar stefna einnig að fjölgun æfinga í haust, nú þegar fleiri borð hafa verið keypt.

Í borðtennisheimsókninni á norðanverða Vestfirði í síðustu viku kom einnig í ljós efnilegt upphaf hjá Gretti á Flateyri og Stefni á Suðureyri, en þar hafa verið vikulegar æfingar á miðvikudögum frá því í mars.

Heimsóknirnar voru styrktar af Hvatasjóði og fá Birna Friðbjörg Hannesdóttir og Páll Janus Þórðarson, svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna á Vestfjörðum kærar þakkir fyrir aðstoð sína við skipulag.

Suðureyri

Flateyri

Þingeyri

Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.

Aðrar fréttir